miðvikudagur, febrúar 21, 2007

langaði ekki, vildi ekki, en varð...

að fara heim. Ég er semsé komin heim frá Ljúfu, hefði alveg verið til í að vera lengur. Átti yndislega daga í rólegheitum með henni og snillingunum. Litli gaur þvílík dúlla enda sat maður sem dáleiddur og horfði á barnið. Þegar við vorum ekki á flakki eða að horfa á barnið þá sátum við og dáðumst að kynþokka þessa manns. Ljúfa ég fékk myndina á flugvellinum og get því setið og horft á hann aftur og aftur eins og þú, en þarf ekki bara að sætta mig við bókina og rifja upp hvernig þættirnir voru (Pride and predjudice, fyrir þá sem ekki vita).

Fór svo í verslunarréttarprófið í morgun og held það hafi bara gengið fínt!