Þetta gat ég...
Allt hafðist þó að lokum og spurning hvort ég taki upp á því að nota síðuna aftur.
Sjáum til svona þegar það fer að róast í vinnu með haustinu...
Ég er rétt þrítug skólastelpa sem á 4 börn. (eiginlega 2 unglinga og 2 börn). Það getur verið rosalega gaman að vera ég.Að sjálfsögðu frábær í öllu sem ég geri.(sleppi því sem er leiðinlegt). Ég á 7 systkini en ekkert alsystkin. Stelpurnar eru í meirihluta, fimm á móti tveimur. (eins með börnin mín 3 stelpur á móti 1 strák sem er gullpungurinn). Ég á frábæran kall sem vinnur við tölvur en er ekki með blogg síðu! spáðu í það.

Leikfélag Ölfuss frumsýnir sakamálafarsann Blúndur og blásýra föstudagskvöldið 16. janúar næstkomandi í Versölum.
Leikstjóri er Gunnar Björn Guðmundsson og með hlutverk fara Aðalbjörg Jóhanna Helgadóttir, Ásta Margrét Grétarsdóttir, Daníel Haukur Arnarsson, Hulda Gunnarsdóttir, Júlía Káradóttir, Magnþóra Kristjánsdóttir, Ólafur Hannesson, Ragnheiður Helga Jónsdóttir, Þórður Njálsson og Þrúður Sigurðar.
Sýningin hefst klukkan 20:00 og miðaverð er kr. 1500.
Miðapantanir í síma 893-1863 (Ásta) og klukkustund fyrir sýningu í Versölum.
Miðasala á allar sýningar verður 15. janúar n.k. frá kl. 19-21:00 í Versölum.
Næstu sýningar:
Laugardagur 17. janúar kl 20
Miðvikudagur 21. janúar kl 20
Föstudagur 23. janúar kl 20
Laugardagur 24. janúar kl 20
Miðvikudagur 28. janúar kl 20
Ráðhúskaffi býður uppá ítalskt hlaðborð frá kl. 18:00 fyrir leikhúsgesti á kr.1.990.- Borðapantanir í síma 483-1700 og 894-3017.
Einnig verður opið í Ráðhúskaffi eftir sýningu.